En hvað með að setja gamla bankann í gjaldþrotameðferð?

Eftir dóm Hæstaréttar í gær þá gæti það kannski verið möguleiki í stöðunni.  Fræðilega séð þá myndi ferlið vera þannig að nýji Landsbankinn kaupir gjaldeyri úr skuldsettum gjaldeyrisforða SÍ til þess að standa skil á skuld sinni við gamla bankann. Eftir það er gamli bankinn settur í gjaldþrotameðferð, erlenda gjaldeyrinum inni í þrotabúinu skipt í krónur í SÍ og kröfuhöfum gamla bankans greiddar út krónurnar.

Þetta gengur svo sem upp á blaði en ég veit svo sem ekki hvaða ljón standa raunverulega í veginum fyrir því að hægt sé að gera þetta.  Hins vegar held ég að við séum í fullum rétti til þess að ganga langt á þolinmæði Breta og Hollendinga í þessu máli.  Uppbygging nýja Landsbankans er skandall og í raun gjafagerningur settur á svið til þess að koma Bretum og Hollendingum framhjá gjaldeyrishöftunum.  Það fæst að minnsta kosti ekki séð hvaða erlendu eignir nýji Landsbankinn tók yfir til þess að réttlæta að hann gæfi út skuldabréf í erlendri mynt og legði það inn í þrotabúið.


mbl.is Þolir ekki stífar endurgreiðslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Benedikt Helgason (Seiken)

Höfundur

Benedikt Helgason
Benedikt Helgason

Býr og starfar erlendis. Óflokksbundinn áhugamaður um þjóðmál en með ímugust á skipulögðu stjórnmálastarfi. Andsetinn af fluguveiðidellu.

Það er ekki reiknað með að nokkur lesi þetta blog en ef svo ólíklega vill til að einhver geri það þá er viðkomandi velkomið að skilja eftir sig athugasemd. Kjósi menn að hreyta ónotum í síðuhöfund þá gæti mér ekki verið meira sama en ég bið ykkur að halda slíku innan velsæmismarka gagnvart öðrum.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 828

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband