Enga eftirgjöf takk.

Þetta er flott.  Fyrsta markmið ríkisins og seðlabankans hlýtur að vera að ekki verði stofnað til skulda í erlendri mynt til þess að koma kröfuhöfum úr landi. Til þess að skerpa á þeirri stefnu er spurning hvort ekki megi skila bróðurpartinum af skuldsetta gjaldeyrisvaraforðanun, gera þrotabúin upp í krónum og byrja að skattleggja þau, en þess utan tryggja að lífeyrissjóðirnir komi ekki heim með erlendu eignir sínar til þess að leysa kröfuhafa úr snörunni.

Það er númer eitt, tvö og þrjú að ekki má undir neinum kringumstæðum veifa gjaldeyri framan í kröfuhafa meðan ekki næst samkomulag um að þeir afhendi innlendu eignirnar gegn því að fá erlendu eignirnar í hendur. Það er rétt að hafa í huga að kostnaður/fé sem falla kann á ríkið eða SÍ í þeim tilgangi að losna við kröfuhafa mun ekki verða notaður í að byggja upp Landspítalann eða í aðra velferð. 

Og hvað varðar sölu á Aríon og Íslandsbanka þá er erfitt að sjá fyrir sér að nokkur erlendur aðili muni snerta við þeim fyrr en búið er að finna lausn á því hvernig gjaldeyrishöftum verður aflétt. Þar til annað kemur í ljós að minnsta kosti, þá mun ég líta á það sem hluta af áróðursherferð að starfsmenn þrotabúanna séu að gefa það í skyn að það sé einhver eftirspurn eftir eignarhlutnum í þessum bönkum úti í heimi. 

Þetta snýst um að standa saman kæru landsmenn og þar undir getur heyrt að stífa þurfi af samfylkingarfólk og aðra kröfuhafa grúppíur með girðingarstaurum til þess að fylla upp í töluna á vígvellinum. Ef þessi orrusta vinnst þá er Ísland á grænni grein.


mbl.is Kröfuhafar orðnir óþolinmóðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Benedikt Helgason (Seiken)

Höfundur

Benedikt Helgason
Benedikt Helgason

Býr og starfar erlendis. Óflokksbundinn áhugamaður um þjóðmál en með ímugust á skipulögðu stjórnmálastarfi. Andsetinn af fluguveiðidellu.

Það er ekki reiknað með að nokkur lesi þetta blog en ef svo ólíklega vill til að einhver geri það þá er viðkomandi velkomið að skilja eftir sig athugasemd. Kjósi menn að hreyta ónotum í síðuhöfund þá gæti mér ekki verið meira sama en ég bið ykkur að halda slíku innan velsæmismarka gagnvart öðrum.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 870

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband